04.08.1913
Neðri deild: 25. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 703 í C-deild Alþingistíðinda. (508)

10. mál, verðlag

Flutningsm. (Bjarni Jónsson):

Eg tek að eins til máls til þess að lýsa yfir því, að eg tók ekki þetta frumvarp upp til þess að særa nokkurn mann. Eg bar svona frumv. upp á þinginu í fyrra með fullri alvöru og í þeirri von, að það kæmist í gegnum þingið.

Eg tek þetta að eins fram vegna þess að mér skildiat á einum háttv. þingm., að hann halda, að eg hefði tekið frum- Varpið upp einungis til þess að særa sig.