05.08.1913
Neðri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 754 í C-deild Alþingistíðinda. (563)
89. mál, dómtúlkar og skjalaþýðendur
Flutningsm. (Bjarni Jónsson):
Eg hefi oft rekið mig á, hve óþægilegt það getur verið að hafa ekki íslenzka. dómtúlka og skjalþýðendur, sem veitt geti trygging fyrir því að rétt sé farið með mál. Yfirvöldin íslenzku eru oft treg og all-oftast ekki fær um að bæta upp þessa vöntun, svo vel sé. Það getur oft verið all-áríðandi að hafa þessa menn, til þess að þýða bréf og önnur skjöl, sem nauðsynleg eru í hverju máli. Á frönsku eru þessir menn kallaðir »translateur«, en eg nefni þá á íslenzku skjalþýðendur og dómtúlka. Ætla eg að þýzka heitið á þeim sé »Gerichtsdolmetscher«. Ef þetta litla frumv. nær fram að ganga, þá verður það til mikils léttis fyrir yfirvöldin í landinu, og bóta við allan málaflutning, sem skjöl á útlendum tungumálum eru notuð við, eða þar sem útlendir menn eiga hlut að máli.
Hvað frumvarpinu sjálfu viðvíkur, skal eg játa, að það stendur til bóta og er það þó ekki af því að eg hafi ekki fyrir löngu ætlað mér að bera það fram, heldur af því, að eg hafði gleymt því. Eg hefi fyrir löngu hugsað mér að koma fram með þetta mál, en hefi altaf gleymt því þangað til nú og því kemur það ver undirbúið en skyldi.
Eg vil leyfa mér að nefna, þótt ekki komi þessu máli við, að eg hefi ekki hugsað mér að ná í stöðu sem skjalþýðandi eða dómtúlkur eða á nokkurn hátt gera mér slíkt að atvinnu.
Eg tek þetta fram af því, að sumir háttv. þm. hafa spurt mig að, hvort eg muni fá styrk til þess að þýða á þýzku bók Einars Arnórssonar um »Réttaratöðu Íslands«, og virðast menn mjög oft halda, að eg sé þar að skara eld að minni köku, sem eg get þó fullyrt að ekki er, og skora eg á deildina að láta ekki óvinsældir mínar verða því máli að falli. Eg vona líka að það verði ekki þessu frumvarpi að falli, að það komi í bága við neina svo ágæta lagasmíð sem vegalögin, sem hafa kastað í landssjóðsfé í ónýtar flutningabrautir, er þola vart tóman vagn, hvað þá, ef nokkuð er í hann látið. En þá óhæfu töldu menn felast í frumvarpinu um vegarspottann, sem féll hér í deildinni í dag. Sem sagt, eg vona að þetta litla frumvarp gangi fram, og vil stinga upp á að 5 manna nefnd verði sett í málið.