05.08.1913
Neðri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í C-deild Alþingistíðinda. (594)

58. mál, hvalveiðamenn

Jóhannes Jóhannesson:

Þó eg þekki ekki þá menn, sem nú reka hvalveiðar á Austfjörðum, þeir eiga allir heima í umdæmi kollega míns, háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.), þá hefi eg þekt menn, er þar ráku hvalveiðar og voru inir mestu heiðurs og sæmdarmenn, er sögur hv. 2. þm. S.-Múl. geta ekki átt við og ummæli hans ekki snert. Þetta þykir mér rétt að taka fram af því, að háttv. 2. þm. S.- Múl. talaði of alment um hvalveiðamenn.