07.08.1913
Neðri deild: 28. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í C-deild Alþingistíðinda. (665)
99. mál, sala á landspildu til prestsins á Kolfreyjustað
Flutningsm. (Jón Ólafsson):
Herra forseti! Við flutningsmennirnir höfum gert það fyrir beiðni prestsins á Kolfreyjustað, að flytja þetta mál inn á þingið. Maðurinn, sem er hniginn á aldur, fer fram á að fá keypta landsspildu í Innri-Skálavík, sem sé 250 faðmar með sjó fram og 90 faðmar upp frá fjöruborði, fyrir ekki minna verð en 180 kr. Héraðsfundur í Suður-Múlasýslu hefir lagt eindregið með þessari málaleitun. Sýslumaðurinn útnefndi menn til þess, að meta spilduna og er hún 180 kr. virði eftir þeirra mati. Eg er vel kunnugur á þessum slóðum, eg er fæddur þar og uppalinn, hefi gengið þar um nærri daglega vor og sumar og haust á æskuárum mínum. Þetta er mýrlent halllendi, sem aldrei hefir verið notað til sláttar og eiginlega helzt til einskis, nema hvað hross slangra þangað, og halda þau sig þó helzt til betra beitilands, sem nóg er til af. Sauðfé mun aldrei hafa verið beitt þar.
Það er margt, sem mælir með því, að þessari málaleitun prestsins verði sint. Landið fullhátt metið, að því er eg hefi bezt vit á. Eg vænti, að beiðandinn ætli að byggja sér þar hús, þegar hann hættir prestsskap, og nota þá landið ef til vill til að rækta það, því að með því að girða það, má rækta mikið af því, með talsverðu erfiði. Presturinn hefir bætt kirkjujörðina miklu meira en þessu nemur, siðan hann tók við henni. Túnið, sem áður gaf af sér 90 hesta, gefur nú af sér 200 hesta. Loks skal eg taka það fram, að þetta landstykki getur ekki rýrt jörðina, svo að neinu nemi, því að á Kolfreyjustað er yfirfljótanleg beit, hvernig setu árar, bæði til fjalls og fjöru. Eg vona því að frumvarpið fái góðar undirtektir, því að það er á sanngjörnum rökum bygt. Eins og eg gat um, er verðið í ríflegasta lagi, og auk þess getur landsstjórnin hækkað það, ef henni sýnist svo, því að í frumvarpinu er að eins sagt, að verðið skuli ekki vera minna en þetta. Eg veit, að háttv. 2. þm. S.-MúI. (G. E.) getur staðfest, að það sem eg hefi skýrt frá um þetta mál, er í alla staði rétt.