11.08.1913
Neðri deild: 31. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 945 í C-deild Alþingistíðinda. (768)
81. mál, bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavík
Jón Ólafsson:
Herra forseti! Eg er þakklátur háttv. flutningsmanni (L. H. B.) að hann hefir heitið að taka breytingartillögu, þá sem eg bar fram, til íhugar til næstu umr.
Eg skal að eins geta þess, að það er einn liðurinn í minni pólitísku trúarjátningu, að dreifa valdinu sem allra mest. Enda finst mér sjálfsagt að bæjarstjórnir hafi eins mikið sjálfræði og sýslunefndir.
Úr því eg fór að standa upp, skal eg geta þess, að mér fanst kenna ósamræmis hjá háttv. 2. þm. G.-K. (gr. D.). Hann Sagði, að allir kaupstaðir mundu fylgja á eftir. En það hljóta allir að sjá. að öðruvís er ástatt með Reykjavík, sem hefir margbeðið um þetta. Ár eftir ár hefir það verið samþykt á öllum þingmálafundum.
Mér finst, að eitt af því sem Alþingi eigi að gera sér að reglu, sé, að láta stjórnir sveitarfél. ráða sér sem mest sjálfar. Mér finst það vera siðferðislegur réttur Reykvíkinga, að þeir fái að ráða því sjálfir, á hvern hátt þeir kjósi borgarstjóra sinn.