12.08.1913
Neðri deild: 32. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 954 í C-deild Alþingistíðinda. (775)

42. mál, stofnun landhelgissjóðs Íslands

Kristinn Daníelsson:

Fyrst hv. ráðherra heyrði ekki orð mín, skal eg endurtaka það, að þótt í lögunum standi að eins Alþingi, þá er auðvitað, að ef farin er frumvarpsleið, þá þarf samþ. konungs til þess að gera lög, en hins vegar er hugsanlegt að nokkra ráðstöfun mætti gera um notkun umrædds sjóðs með einfaldri þingsályktun.