12.08.1913
Neðri deild: 32. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 976 í C-deild Alþingistíðinda. (803)
29. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands
Guðmundur Eggerz:
Eg vildi að eins leyfa mér að benda á, að það sitja nú þegar fjöldamargar nefndir að atörfum, — þær munu vera orðnar um 40 talsins, — og eg er hræddur um, ef ný nefnd verður kosin í þetta mál, þá verði það að eina til að svæfa málið. Eg vil þess vegna gera það að tillögu minni, að því verði vísað til þeirrar nefndar, sem þegar hefir verið kosin hér í deildinni til að íhuga Aðalvíkursímann.