12.08.1913
Neðri deild: 32. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 976 í C-deild Alþingistíðinda. (805)

29. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Lárus H. Bjarnason:

Þetta, með hvaða hætti nefndin sé skipuð, skiftir ekki miklu máli. Mér þykir þó í fult svo rétt, að málinu verði vísað til gömlu nefndarinnar, bæði af þeim ástæðum, sem háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) tók fram, og líka af því, að þingm. hafa ekki búið sig undir nýja nefndarkosningu.