14.08.1913
Neðri deild: 34. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1152 í C-deild Alþingistíðinda. (860)

47. mál, styrktarsjóður handa barnakennurum

Framsögm. (Jón Jónsson):

Efri deild hefir gert eina breytingu við þetta frumvarp, en breytingin er þannig vaxin, að okkur flutningsmönnum finst frv. ná tilgangi sínum, þó að hún sé samþykt. Við getum því fyrir okkar leyti aðhylst þessa breytingu og vonum að háttv. deild geti það einnig.