15.08.1913
Neðri deild: 35. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1214 í C-deild Alþingistíðinda. (912)
28. mál, ábyrgðarfélög
Framsögum. minni hl. (Bjarni Jónsson):
Eg þarf eiginlega ekki að bæta neinu við það, sem stendur í nefndaráliti mínu. Það sem olli ágreiningnum var það, að eg trúi ekki að félögin mundu hætta starfi sínu hér á landi, þó að þeim væri gert að skyldu, að hafa þá tryggingu fyrir greiðslu ábyrgðanna, sem stjórnarráðið tæki gilda. Eg býst við, að menn séu svo hræddir við afleiðingarnar, sem háttv. meiri hluti nefndarinnar miklar svo fyrir sér að minni hyggju, að þeir samþykki tillögur hans. Þess vegna hefi eg borið fram viðaukatill. mína um það, sem kom til orða í nefndinni, en ekki varð. annað úr. Þar sem háttv. meiri hluti getur aðhylzt hana og hæstv. ráðherra, að því er hann Segir mér nú — honum gleymdist að taka það fram í ræðu sinni áðan — þá finn eg ekki ástæðu til að fjölyrða meira um málið, en læt mér að eins lynda, hvað ofan á verður.