15.08.1913
Neðri deild: 35. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1220 í C-deild Alþingistíðinda. (918)
30. mál, leynilegar kosningar til bæjarstjórnar í kaupstöðum
Ráðherrann [H.H.]; Það er misskilningur hjá háttv. þm. Dal. (B. J.), að þetta sé þvert ofan í anda hlutfallskosninga. Andi hlutfallskosninga er, að hver kjörflokkur fái þá tölu fullrúa, er honum ber að réttu hlutfalli eftir atkvæðamagni lista. Það raskar alls ekki þessu grundvallaratriði, þó einnig aðrir en þeir sem með lista hafa komið, geti haft áhrif á það, hverjir verða fyrir kjöri, þ. e. hverjir verða teknir til að fylla þá fulltrúatölu, sem listanum ber.