16.08.1913
Neðri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1324 í C-deild Alþingistíðinda. (988)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Bjarni Jónsson:

Eg stend upp að eins til þess að taka aftur brtill. mína 4. lið á þgskj. 448, um Símann frá Búðardal að Tjaldanesi. Eg hefi nefnilega von um að brtill. um brúargerðina á Fáskrúð nái fram að ganga, og sé eg ekki til neins að fara fram á símann, ef hún verður samþykt. Ef hún verður ekki samþykt, þá mun eg bera fram þessa brtill. Við 3. umr.