16.08.1913
Neðri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1325 í C-deild Alþingistíðinda. (991)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Jón Ólafsson:

Herra forseti ! Eg stend upp til að taka í sama streng og háttv. þingm. Akureyrar um vitamálin. Það má vel vera, að vitinn á Meðallandstanga sé dýrari að öllu leyti. En þá er betra að geyma að byggja vita; því að vitinn á Ingólfshöfða er ekki til neins verulegs gagns. Eg mun koma með breytingartillögu við 3. umræðu um þetta efni.