20.07.1914
Neðri deild: 16. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1067 í B-deild Alþingistíðinda. (1071)
74. mál, land til stækkunar á kirkjugarðinum í Reykjavík
Flutningsm. [Jón Magnússon ]:
Það er rétt hjá hv. 2. þm. Árn. (E. A.), að það er sjálfsagt hægt að krefjast þess af utanþjóðkirkjusöfnuðum, að þeir taki þátt í þessum kostnaði. En þingið hefir altaf tekið svo vel í þeirra mál, og ekki viljað íþyngja þessum söfnuðum, og svo vona eg að verði ennþá. Hitt gæti komið til tals fyrir nefndina, hvort ekki væri rétt að láta þá gjalda legkaup, þótt þjóðkirkjumenn geri það ekki nú. En mér þætti ilt, ef farið væri að íþyngja fríkirkjumönnum með því, að skylda þá til að taka beinan þátt í kostnaðinum við kirkjugarðsstækkunina.
Þá hefir það verið orðað af hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) og hv. þm. N.-Þing. (B. Sv.) hvort ekki mætti kaupa kirkjugarðslóð annarsstaðar og ódýrara. En eg tel það mjög vafasamt, að hægt sé að fá lóð nálægt bænum ódýrara en á 1 kr. alinina. Það yrði þá að velja landið svo langt frá bænum, að menn gæti varla fylgt vinum og vandamönnum til grafar gangandi. Og það tel eg vafasamt, hvort rétt sé að hafa kirkjugarð svo langt burtu. Annars sé eg ekki ástæðu til að fjölyrða, meira um þetta.