31.07.1914
Neðri deild: 29. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í B-deild Alþingistíðinda. (110)

91. mál, strandgæsla

Framsögum. (Þorleifur Jónson):

Eg vil að eins geta þess, að eg hefi orðið var við tvær prentvillur, sem eg hygg að megi leiðrétta í »redaktioninni«. Það er í 4. gr. og 2. línu 9. gr. Á báðum stöðunum stendur ranglega 7. gr., en á að vera 8. gr. Eg álít óþarft að halda neina ræðu um málið við þessa umr. Því var svo vel tekið við 2. umr. og breytingartillögur liggja ekki fyrir.