12.08.1914
Neðri deild: 44. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1201 í B-deild Alþingistíðinda. (1198)

129. mál, afleiðingar harðræðis

Ráðherra (S. E.):

Eg mun fyrir mitt leyti greiða atkvæði með tillögunni. Eg get ekki verið því samþykkur, að stjórnin hafi ekki nægilegt fé, en þó að svo væri, þá sé eg ekki, hvernig hv. þm. ætla að fá meira fé, þó að þingtíminn yrði lengdur um fáeina daga. Þetta er aðeins spurning, sem eg vildi beina til þeirra.