12.08.1914
Neðri deild: 44. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1286 í B-deild Alþingistíðinda. (1265)
117. mál, kostnaður við starf fánanefndar
Benedikt Sveinsson:
Það er misskilningur hjá hv. 1. þm. Eyf. (H. H.) að eg væri að telja eftir kostnaðinn til nefndarinnar í sjálfu sér, því að eg tel það aukaatriði, hvort goldið er krónunni meira eða minna, ef þá horfir til meiri fremdar þessu máli en áður. En eg hélt hinu fram, að það væri síður en svo, að gagn hefði verið að þessari nefnd, eða þörf á henni. Það var tilætlun konungs að vita vilja þjóðarinnar um fánagerðina, en með þessari nefndarskipun er þjóðinni einmitt bægt frá því að lýsa vilja sínum í því efni. Nefndin bað einmitt alþýðu að leggja nú ekkert til málsins um gerð fánans fyrri en hún lyki starfi sínu, en svo gerir hún það ekki fyrri en svo seint, að enginn gat dæmt um gjörðir hennar fyrir þing, nema ef til vill Reykvíkingar, og þó í flaustri. — Fyrirspurnir nefndarinnar til manna um tillögur til nýrrar fánagerðar, eru alt annars eðlis, og enganveginn gerðar til þess að kynna sér vilja þjóðarinnar, heldur til þess að fá sem flestar tillögur, er hafa mætti til hliðsjónar, ef breyta þyrfti gerð fánans. Þessar tillögur komu og ekki nema frá örfáum einstaklingum, enda hafði verið varað við því af fánavinum, að menn skyldi ekki hlaupa upp til handa og fóta til þess að gera glundroða í málið. Af þessum fáu tillögum má þó sjá, að langflestir eru með íslenzka fánanum óbreyttum, þótt vitanlegt sé, að allur þorri fánavina lét nefndinni engar tillögur í té.
Það má vel vera að þessar heimshagskýrslur þyki fróðlegar, en til þess að safna þeim þurfti ekki milliþinganefnd. Til þess þurfti aðeins nokkra elju, og hefði hagstofan sjálfsagt vel mátt anna því.
Ekkert kemur það þessu máli við, þótt skipuð hafi verið fánanefnd í Danmörku, því að hún er sett í alt öðru skyni en þessi. Hún á að taka málið frá rótum og koma með nýjar tillögur á öðrum grundvelli.
Eg ætla annars ekki að fara að finna að gjörðum nefndarinnar hér, nema að því leyti sem hún fór að makka við konung um málið. Það er algjörlega ótilhlýðilegt, að slík nefnd fari þannig að grípa fram fyrir hendur stjórnarinnar og fréttast fyrir um álit konungs, þar sem hann situr ráðherralaus, og flagga svo með »privat«-neitun hans frammi fyrir þjóðinni.