17.07.1914
Efri deild: 11. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (1271)

116. mál, skrásetning skipa

Steingrímur Jónsson :

Þetta frumv. stendur í svo nánu sambandi við fánamálið, að það er ekki hægt að gera neitt í því fyr en menn vita, hvernig fánamálinu reiðir af. Svo sem kunnugt er, hefir verið kosin nefnd í fánamálið hjer í deildinni, og leyfi jeg mjer að leggja það til, að þessu frv. verði vísað til þeirrar nefndar og að 2. umr. verði frestað.