04.07.1914
Efri deild: 3. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í B-deild Alþingistíðinda. (1315)

77. mál, notkun bifreiða

Júlíus Havsteen :

Vegna þess, að mörgum deildarmönnum mun vera lítt kunnugt um þetta mál, finst mjer nauðsynlegt að skipa nefnd í málið. Vil jeg því leyfa mjer að leggja það til, að kosin verði 5 manna nefnd til að íhuga málið að lokinni þessari umræðu.