20.07.1914
Efri deild: 13. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í B-deild Alþingistíðinda. (1419)
38. mál, bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavík
Jósef Björnsson :
Jeg skal ekki þrátta við hv. 3. kgk. (Stgr. J.) um það, hvort fullsannað sje eða ekki, hver sje vilji bæjarbúa í máli þessu; það þýðir ekki að svo stöddu, en jeg vona að málið komist svo langt, að hægt verði að kynna sjer það og fleira áður en lýkur. En frv. þetta fer ekki einungis fram á það, að borgarstjóri sje kosinn af öllum kosningarbærum bæjarbúum; í því er einnig annað, sem jeg get trúað að hafi talsverða þýðingu. Það hefir líka ákvæði um það, að bæjarstjórnin skuli kjósa sjer fundarstjóra, en borgarstjóri sje ekki sjálfkjörinn fundarstjóri, eins og nú er. Slíkt fyrirkomulag hlýtur að vera óheppilegt; borgarstjóri er framkvæmdarstjóri bæjarstjórnar og hlýtur því iðulega að þurfa að taka til máls, til að gjöra grein fyrir gjörðum sínum. Það virðist því miklu heppilegra, að hann sje ekki sjálfkjörinn fundarstjóri á bæjarstjórnarfundum.
Þetta atriði tel jeg svo þýðingarmikið, að hvað sem borgarstjórakosningunni líður, þá ætti hv. d. að lofa málinu að ganga til 2. umr. þess vegna. Er þá hægt fyrir mótstöðumenn frv. að átta sig á málinu í heild sinni, og nota það úr frv., sem þess þætti vert, að notað væri, en koma breytingartillögum fram um að fella í burt hitt, sem þeim þykir þörf á að burt sje numið. Að svo stöddu gjöri jeg það þó eigi að tillögu minni, að nefnd sje sett í málið.