11.08.1914
Efri deild: 37. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í B-deild Alþingistíðinda. (1669)

82. mál, listaverk Einars Jónssonar

Magnús Pjetursson:

Jeg tel brtt. (469) harla óþarfa.

Hvort hjer er um 1–200 kr. meira eða minna að ræða, tel jeg ekki máli skifta, og skil ekki í því vantrausti til stjórnarinnar, að æfinlega þurfi að skamta henni úr hnefa.

Jeg fyrir mitt leyti trúi stjórninni vel fyrir því, að verja ekki meira til þessa en full þörf er á. Þess vegna tel jeg brtt. algjörlega óþarfa og nærri hlægilegt, að hún skuli hafa komið fram.