23.07.1914
Efri deild: 16. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í B-deild Alþingistíðinda. (1844)

72. mál, hlutafélagsbanki

Framsögum. (Kristinn Daníelsson):

Það getur verið, að jeg hafi í „prívat“ samtali lagt ofmikla áherslu á þetta atriði, er háttv. 1. kgk. (J. H.) minist á, en jeg skýt því til háttv. deildarmanna, að jeg hefi ekki gjört það á neinum fundi. Annars skal jeg geta þess, að tillagan fer ekki fram á nema helming þeirrar upphæðar, er ráðgjört hefir verið að hækka hlutafjeð um.