23.07.1914
Efri deild: 16. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í B-deild Alþingistíðinda. (1847)

72. mál, hlutafélagsbanki

Eiríkur Briem :

Jeg verð að styðja það, að málið sje tekið út af dagskrá. Ef breytingartillagan verður samþykt, þá er með henni brotið skýlaust einkaleyfi, er bankinn hefir fengið með lögunum 10, nóv. 1905. Það er ómögulegt að samþykkja tillöguna eins og hún liggur fyrir, án þess að brjóta skýlausan rjett, sem bankinn hefir að lögum.