03.08.1914
Efri deild: 30. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í B-deild Alþingistíðinda. (1865)

75. mál, sparisjóðir

Steingrímur Jónsson :

Þetta mjög svo þýðingarmikla mál var fyrir síðasta þingi. Það var þá til meðferðar hjer í deild og var afgreitt til hv. Nd., en var felt þar. Í sumar lagði stjórnin málið fyrir hv. Nd., og hefir hún nú afgreitt það hingað. Frv. hefir þó tekið allmiklum breytingum frá því það fór hjeðan frá deildinni í fyrra, og því vil jeg leggja til að 5 manna nefnd sje skipuð í það að lokinni þessari umræðu; en með því að æskilegt er að málið verði afgreitt hjer frá þinginu í ár, vona jeg að nefndin geti lokið starfi sínu á skömmum tíma, svo að málið þurfi ekki að stranda í þinginu vegna tímaskorts.