17.07.1914
Efri deild: 11. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 432 í B-deild Alþingistíðinda. (1918)
62. mál, hvalveiðamenn
Steingrímur Jónsson :
Jeg ætla ekki að fara mörgum orðum um málið við þessa umræðu. Jeg var mótfallinn þessum lögum, þegar þau voru hjer til meðferðar í fyrra, af því jeg áleit þau gagnslítil og óheppileg. Jeg álít því þá breytingu, sem hjer er farið fram á, heppilega, þar sem hún losar landssjóð við að greiða hvalveiðamönnum skaðabætur fyrir eignatjón þeirra. Skal jeg svo ekki fjölyrða frekar um málið, því að hæstvirtur ráðherra hefir bent á, að landssjóður geti ekki, eins og lögin nú eru, komist hjá bótum fyrir eignatjón. En þar sem viðbúið er að skoðanir manna um þetta mál sjeu allskiftar og nauðsynlegt er, að þingið kynni sjer alt hið sanna um gang þessa máls hjá Norðmönnum, þá legg jeg til að þriggja manna nefnd sje skipuð í málið.