29.07.1914
Efri deild: 21. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í B-deild Alþingistíðinda. (1926)
62. mál, hvalveiðamenn
Kristinn Daníelsson:
Aðeins örstutt athugasemd. Mjer þykir rjettast, að frv. nái fram að ganga. Jeg var mótfallinn hvalveiðabannlögunum í fyrra, — þótti þau óþörf. Aftur líkar mjer ekki brtt. á þgskj. 198. Þar stendur, að þeir megi eigi flytja inn nýjar vjelar nje hluta úr vjelum. Slíkt þykir mjer mjög ósanngjarnt. Vjelar geta orðið ónýtar, ef vantar í þær einhver stykki. Hvalveiðamenn á Vestfjörðum höfðu smíðastofu, en jeg sje ekki, hvort þessir hvalveiðamenn hafa það eða ekki. Jeg er því algjörlega mótfallinn seinni parti tillögunnar. Frv. getur verið gott án hennar.