24.07.1914
Efri deild: 17. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 441 í B-deild Alþingistíðinda. (1930)
96. mál, bann gegn botnvörpuveiðum
Framsögum. Karl Einarsson :
Jeg ætla að eins að vísa til þess, sem jeg sagði í gær um breyting á lögum um botnvörpuveiðar frá 1898. Jeg þakka sjerstaklega hv. umboðsm. ráðherra fyrir undirtektir hans undir breyting á þeim lögum. En það var eitt atriði, sem hann skaut fram, hvort eigi væri rjett að taka inn í frv. ákvæði um að ætíð ætti að selja upptækan afla við uppboð. Það hefir verið litið svo á af stjórninni frá upphafi, að slíkt ætti að gjöra, nema ef sjerstaklaga stæði á. Það hafa að eins verið gjörðar undantekningar einstöku sinnum Jeg held, að þetta fyrirkomulag sje heppilegast, að stjórnin hafi þó heimild til að gefa undanþágu, t. d. ef halda verður skipunum mjög lengi. Jeg sje ekki annað en þessu sje vel fyrir komið, ef það verður notað á heiðarlegan hátt, eins og gjört hefir verið að svo miklu leyti sem jeg þekki til.