06.08.1914
Efri deild: 33. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í B-deild Alþingistíðinda. (1965)

33. mál, vegir

Steingrímur Jónsson:

Hjer er að ræða um breyting á vegalögunum frá 1907, og þar sem 2 önnur frv. sama efnis liggja fyrir deildinni, þá vil jeg leyfa mjer að leggja til, að þessu frv. verði vísað til þeirrar nefndar, sem hefir þau til meðferðar.