27.07.1914
Efri deild: 19. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í B-deild Alþingistíðinda. (2174)

51. mál, vegir

Sigurður Stefánsson ; Jeg veitti því eftirtekt, að hv. þm. Vestm. (K. E.) sagði, að mál þetta hefði verið á döfinni í 3 ár, En hvers vegna hefir þá ekki hreppsnefndin verið spurð ráða? Það finst mjer undarlegt, og mætti ætla, að staðið hafi í stímabraki milli hreppsnefndar og sýslunefndar út af málinu. Hinn hv. þm. kemur hjer fram sem málsvari sýslunefndarinnar, en jeg fyrir mitt leyti get ekki greitt atkv. með brtt. fyr en jeg fæ fullnægjandi upplýsingar um skoðun hreppsnefndarinnar á málinu.