27.07.1914
Efri deild: 19. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í B-deild Alþingistíðinda. (2176)

51. mál, vegir

Sigurður Stefánsson :

Jeg hefi enn þá ekki fengið þær upplýsingar, sem mjer nægja. Það getur vel verið, að hreppsnefndin sje málinu ekki mótfallin, en þá hefði yfirlýsing um það frá hennar hendi átt að liggja hjer fyrir. Jeg sje ekki betur en að mál þetta megi bíða til næsta þings, og getur þá hreppsnefndin látið í ljós sína skoðun á málinu. Hjer á þingi hefir það altaf verið síður að heyra báða málsaðilja, þegar svona stendur á.