03.08.1914
Efri deild: 30. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í B-deild Alþingistíðinda. (2188)

89. mál, friðun héra

Sigurður Stefánsson :

Jeg verð að játa það, eins og fleiri, að jeg er enginn hjerafræðingur; þó hefi jeg heyrt þess getið, að hjerar væru mjög huglítil dýr; og mjer finst háttv. deild sverja sig í hjeraættina, ef hún þorir ekki að láta málið ganga til 2. umræðu. Jeg fyrir mitt leyti mun greiða atkvæði með því. (Guðm, Björnsson : Jeg líka).