14.07.1914
Neðri deild: 11. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í B-deild Alþingistíðinda. (235)

4. mál, mæling og skrásetning lóða

Bjarni Jónsson:

Eg gæti nefnt mörg dæmi þessa, en skal samt ekki nefna nema eitt. Hér hefi eg nú um mörg ár borið fram beiðni frá héraðsstjórn Dalamanna um, að vegarspotti sé gerður að þjóðvegi, en það hefir verið eins og að berja í harðan stein, að fara fram á slíkt. Það stendur nú svo vel á, að eg er enn með þennan veg hér á þinginu nú, og þykir mér vænt um að heyra, að háttv. 2. þm. Rvk. (J. M.) er

honum meðm., er hann heyrir að beiðni um hann kemur frá héraðsstjórninni.