18.07.1914
Neðri deild: 15. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í B-deild Alþingistíðinda. (350)
32. mál, varadómari í landsyfirrétti
Framsögum. (Einar Arnórsson):
Eg get verið fáorður um þetta mál. Það hefir farið svo, að nefndin hefir öll verið sammála um það, að ráða háttv. deild til þess að samþykkja frumv. Tilgangur þess er sá, að efla sjálfstæði yfirdómsins og taka þann vanda af umboðsstjórninni að setja dómara, ef einhver hinna skipuðu dómara forfallast eða verður óhæfur. Tilætlunin er sú, að þá taki sæti einhver af prófessorum lagadeildar háskólans, og ætti þeir menn ekki að vera óhæfari en aðrir til þess að sitja dóminn, og ætti yfirdóminum fremur að vera vegsauki að þessu en hitt. Nefndin hefir gert eina óverulega breyt.till. til skýringar 4. gr.
Eg skal svo ekki þreyta háttv. deild á lengri umræðu, en vænti þess, að málið fái góðan framgang.