12.08.1914
Neðri deild: 42. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 429 í B-deild Alþingistíðinda. (455)

82. mál, listaverk Einars Jónssonar

Guðm. Hannesson:

Eg get ekki stilt mig um að segja svo sem tvö orð út af ræðu háttv. þm. Dal. (B. J.). Þegar þetta mál var hér til umræðu á dögunum, þá taldi hann hægt að byggja hús fyrir 300 kr. til þess að geyma í myndirnar. Ef hann ætlast nú ekki til, að kostnaðurinn fari fram úr þessari áætlun hans, má leigan á þessu húsi ekki fara fram úr 15–20 kr. á ári. Háttv. þm. (B. J.) gerði sjálfur ráð fyrir því, að hús fyrir myndirnar kostaði ekki meira en 300 kr. Reyndar bauðst hann ekki til að byggja það sjálfur fyrir þetta verð, en hann taldi engan vafa á því, að það væri hægt. Nú býst eg við, að húsnæðið sé farið að hækka í verði.