27.07.1914
Neðri deild: 22. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í B-deild Alþingistíðinda. (473)

88. mál, landsdómur

Flutningsm. (Einar Arnórsson) :

Við þessa umræðu ætla eg ekki annað að segja en það, að við flutningsmenn höfum komið okkur saman um það, að taka þetta frv. aftur, og leggja fram nýtt frv. á þskj. 202. Eg læt mér nægja að vísa til nefndarál., og vona að háttv. deild láti málið ganga fram í þessu formi að sinni.