30.07.1914
Neðri deild: 25. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í B-deild Alþingistíðinda. (478)
88. mál, landsdómur
Pétur Jónsson :
Eg get lýst því yfir, að mér virðast þær breytingar sem frv. fer fram á, á engan hátt óeðlilegar eða óheppilegar. En þegar það er tekið og borið saman við nefndarálitið, þá virðist mér það óþarft. Í nefndinni varð niðurstaðan sú, að víkja þessu máli til stjórnarinnar og fela henni að leggja fyrir næsta reglulegt alþingi frv. til laga um landsdóm. Þegar búist er við því, að stjórnin taki þessa till. til greina, hvort sem nefndarálitið verður látið nægja, eða sérstök þingsályktunartill. um þetta efni verður samþykt, þá virðist mér öldungis óþarft að breyta nú gildandi lögum að eins til eins árs nema ef svo væri, sem eg veit ekki til að bólað hafi á, að sérstök þörf væri fyrir hendi að beita lögunum, annaðhvort gagnvart hinum nýja ráðherra, eða hinum fráfarandi. En þó að svo væri, þá væri það ekki allskostar eðlileg aðferð að breyta lögunum fyrir slíkt einstakt tilfelli.