05.08.1914
Neðri deild: 35. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (609)

51. mál, vegir

Flutningsm. (Björn Kristjánsson):

Fyrst enginn tekur til máls, skal eg leyfa mér að minnast á br.till. á þskj. 346, sem fer fram á að fella burtu 2. málsgr. 1. gr., um að landið taki að sér viðhaldið á 1/3 hluta vegarins. Þetta finst mér vera smámunasemi, þegar það er oft reglan, að landið borgi 1/3 af viðhaldi slíkra vega, sem ætlast er til að þessi verði. Eg er því á móti þessari breyt.till. og vona að hún verði feld.