11.07.1914
Neðri deild: 9. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 729 í B-deild Alþingistíðinda. (708)

7. mál, girðingar

Flutningsm. (Einar Arnórsson):

Eg skal ekki vera langorður. Eg vildi aðeins vekja athygli á, að við flutningsm. höfum komið með þrjár smábrt., sem allar eru mjög smávægilegar, og aðeins eru til að laga smágalla á frv., en engin þeirra er efnisbreyting. Eg vænti þess, að frv. fái að ganga í gegn með þessum breytingum, verði nú visað til 3. umr., og síðan út úr deildinni.