17.07.1914
Neðri deild: 14. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 790 í B-deild Alþingistíðinda. (779)
21. mál, mat á lóðum og löndum í Reykjavík
Flutningsm. (Sveinn Björnsson) :
Við flutningsmenn frv. höfum komið fram með brt. á þskj. 123 í samræmi við bendingar háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) við aðra umr. Við féllumst á athugasemdir hans, og væntum að hv. deild fallist einnig á þær.