05.08.1914
Neðri deild: 35. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 937 í B-deild Alþingistíðinda. (900)
104. mál, varnargarður á Siglufjarðareyri
Flutningsm. (Stefán Stefánsson):
Eg býst ekki við, að neinum hv. þingmanni komi það á óvart, að eg skuli nú flytja frumvarp þetta. Frumv. er sams konar sem frumvörp þau um fjárveitingar, sem samþykt vóru í gær. Fjáraukalaganefndin hafði haft þessa fjárveiting til athugunar og var henni meðmælt. Það kann að vera, að mönnum þyki þetta frumv. frábrugðið tillögum nefndarinnar, þar sem hér er ekki ætlast til þess, að sveitarfélagið leggi nokkurt fé fram. En svo stendur á því, að samkvæmt tali við prestinn á Siglufirði, eru litlar líkur til þess, að Siglfirðingar geti lagt nokkurt fé fram til fyrirtækisins. Að vísu er þar nokkurt fé í hafnarsjóði, en sveitin hefir í hyggju að setja upp hafnarbryggju, og mun þá ekki veita af því fé til byggingarinnar.
Eg legg það á vald deildarinnar, hvort hún vill samþykkja frumv. þrátt fyrir þetta. Verkfræðingur landsins hefir skoðað staðinn samkvæmt óskum Siglfirðinga og að tilhlutun stjórnarráðsins, og segir svo í áliti hans:
»Þar sem nú sjávarbakkinn eyðist með hverju ári og jarðvegur sá, sem við tekur, þá er sjórinn hefir etið sig gegnum hann, er mjög gljúpur og alveg óhæfur til þess að mæta nokkrum sjávargangi, þá er bráðnauðsynlegt að vernda malarkambinn«.
Þetta sýnir ljóslega, hver nauðsyn er á fljótri aðgerð. Kostnaður við verkið er 9700 kr. samkvæmt áliti verkfræðingsins.
Legg eg það á vald deildarinnar, að dæma um, hvort henni sýnist að láta málið liggja alveg aðgerðarlaust, láta þennan afardýra blett, sem er eign landssjóðs, skemmast til mikils skaða fyrir landið, eða veita nú heimild til bráðra aðgerða. Ef aðgerðin verður látin dragast, þá verður bæði kostnaðurinn meiri og tjónið tilfinnanlegra fyrir landssjóð.
Verði þetta frumvarp nú ekki samþykt, þá verður málið að bíða næsta þings og kemst verkið þá ekki til framkvæmda fyrr en sumarið 1916, sem eg tel mjög illa farið.