08.08.1914
Neðri deild: 38. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 943 í B-deild Alþingistíðinda. (909)
115. mál, kaup á Þorlákshöfn
Pétur Jónsson:
Eg ætlaði að fara í sama farið og háttv. 1. þm. Hún. (G. H.). Eg get ekki séð, að bráðliggi á að koma fram þessu frv. endilega á þessu þingi, því að mörg önnur svipuð nauðsynjaverk liggja fyrir annarsstaðar á landinu, og eg skil ekki, að það sé forsvaranlegt, að hrinda því fram í þinglok með engum fyrirvara, og það þótt að undirbúningurinn væri betri en hann er á málinu. En mér er ómögulegt að telja málið vel undirbúið. T. d. er hér um alveg nýja hugsun að ræða, — að taka Þorlákshöfn lögnámi og kaupa jörðina til handa landssjóði. Hvernig fæst fé til þess? Geta menn nú á þessu aukaþingi sett sig inn í fjárhagshorfurnar eða gert sér grein fyrir, hvað þessi kvöð, þessi stóru fjárútlát, hindra mörg önnur nauðsynjafyrirtæki, kanske fult eins góð eða betri? Samanburð á því vantar, og hann fæst ekki nema á reglulegu þingi. Það getur verið, að þá komi í ljós, að annarsstaðar sé enn meiri þörf á samskonar umbótum. Getur verið, að fjárhagur standi þó svo, að nýmælum verði ómögulegt að sinna. Nú er ekki hægt nema á fjárlagaþingi að gera sér grein fyrir fjárhagnum. Mér finst það því hreint og beint glapræði að ráða þessu máli nú til lykta og er algerlega sammála 1. þm. Hún. (G. H.) að vísa því til stjórnarinnar með rökstuddri dagskrá, og sé eg þá ekki betur, en að málinu sé fullur sómi sýndur, ef stjórninni er falið að athuga það, án þess að eg vilji hvetja hana til að taka þetta mál fram yfir alt annað.