14.09.1915
Efri deild: 62. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 992 í B-deild Alþingistíðinda. (1101)
157. mál, áfengisbirgðir landsjóðs
Ráðherra Í tilefni af ummælum hv. þm. Seyðf. (K. F.) vil jeg taka það fram, að áfengi þetta er keypt fyrir mína tíð í alveg sjerstökum ákveðnum tilgangi, og það hlýtur að vera fullkomlega löglegt að nota það í þeim tilgangi en um það hvernig það geymist, skal jeg láta ósagt, um það brestur mig þekkingu til að dæma, en það hefi jeg heyrt, að sumt áfengi batni við geymslu.
Því hvort lyfjabúðin vilji kaupa þessar 6 kognaksflöskur, hvort hún vilji brúka þá tegund, vísa jeg til hv. 5. kgk. þm. (G.B.) sem er færastur til að dæma um það.
Gjarnan vildi jeg heyra álit fleiri hv. þingmanna um það, hvað eigi að gjöra við þennan forboðna ávöxt.