01.09.1915
Efri deild: 48. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í B-deild Alþingistíðinda. (115)
112. mál, fjáraukalög 1912 og 1913
Framsögumaður (Björn Þorláksson:
Það hefir stundum verið siður hjer í deildinni, að skipa ekki nefnd til þess að athuga fjáraukalagafrv., en í þetta skifti var nefnd skipuð, og liggur nú nefndarálitið fyrir á þgskj. 628. Jeg hefi litlu við það að bæta, sem þar segir, en vil þó endurtaka hjer helstu athugasemdir nefndarinnar. Í frv. stjórnarinnar er það, sem sparast hefir á einum gjaldlið annað árið, dregið frá því, sem goldið hefir verið fram yfir fjárveitingu seinna árið, og virðist nefndinni það algjörlega röng aðferð. Enn fremur er það varhugavert, að í frv. er hinum ýmsu gjaldliðum, er snerta flutningabrautirnar og þjóðvegina, slegið saman, svo að það fje, sem veitt var á einum lið og ekki hefir verið notað, er látið koma upp í það, sem varið hefir verið fram yfir fjárveitingu á öðrum lið. Þetta virðist nefndinni ekki rjett, og telur hún þvert á móti sjálfsagt, að umfram greiðslurnar á hinum einstöku liðum sjeu bornar undir atkvæði Alþingis, hver í sínu lagi. Nefndin hefir samt ekki viljað koma fram með brtt. út af þessu, og er það af þeirri ástæðu, að hún mundi hafa lagt það til, að umframgreiðslurnar á hinum einstöku liðum yrðu allar samþyktar. Þetta má þó alls ekki skoða sem fordæmi, og vonar nefndin, að stjórnin taki aðfinningar hennar í nefndarálitinu til greina framvegis.
Í frv. er talið, að sparast hafi á árinu 1912 til þjóðvega kr. 2982,08, en það er ekki rjett upphæð. Það ár var veitt til þjóðvega kr. 43,100, en varið til þjóðvega kr, 40127,92. Mismunurinn er kr. 2972,08, og hefir hjer misreiknast um 10 krónur. Enn fremur er prentvilla í samtölunni kr. 2656,94 fyrir kr. 2686,94, og er þetta leiðrjett með 1. brtt. nefndarinnar.
Um hinar brtt. nefndarinnar þarf jeg ekki að tala margt. Nefndinni virðist rjett að taka alla þá upphæð, sem varið var til kennaraskólans 1913 fram yfir fjárveitingu, — en það voru kr. 303.11 — upp í fjáraukalögin. Þær 300 kr., sem veittar voru fyrir árin 1910 og 1911 til sundkenslu í Reykjavík, en fyrst útborgaðar 1912, þótti nefndinni rjett að taka upp í fjáraukalögin til endurveitingar. Útborgaður námsstyrkur til iðnaðarmanna erlendis, fór 1912 225 kr. fram úr fjárveitingu. Að vísu hefir þessi upphæð sparast á undangengnu fjárhagstímabili, en nefndinni þykir rjett, að taka hana upp til endurfjárveitingar.