24.07.1915
Neðri deild: 15. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 600 í B-deild Alþingistíðinda. (1322)
27. mál, ullarmat
Pjetur Jónsson:
Jeg hefi athugað þetta mál nokkuð, bæði fyrr og seinna. Mjer gafst kostur á að athuga það, þegar frumvarpið var í smíðum; fann jeg þá ekkert athugavert við það. Síðan hefir þetta frumvarp verið athugað nákvæmlega í Ed., og ekkert út á það verið sett. Jeg vil því leggja til, að það gangi hjer ekki gegnum neina nefnd, því að jeg hygg, að ef mönnum þætti frumv. athugavert, þá væru athugasemdir komnar fram um það.