03.08.1915
Neðri deild: 23. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 655 í B-deild Alþingistíðinda. (1425)

51. mál, sparisjóðir

Forseti:

Jeg skal geta þess, áður en umræður um þetta mál hefjast, út af aðferðinni, sem við þetta frumvarp hefir verið viðhöfð, að komið hafa fram frá tveimur klofningum nefndarinnar 7 breytingartillögur frá hvorum, sem allar eru samhljóða að efni og orðfæri. Þar sem þetta virðist ekki geta verið málinu til neina gagns, en að eins lengja skjalapart þingtíðindanna að óþörfu, þá vildi jeg mælast til þess við hv. þingmenn, að slíkt komi ekki fyrir eftirleiðis.