13.08.1915
Neðri deild: 32. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (1443)

60. mál, vélgæsla á gufuskipum

Framsm. (Matthías Ólafsson) :

Jeg get verið stuttorður, því að jeg get skírskotað til nefndarálitsins á þgskj. 283. Nefndin hefir fallist á efni frumv., en þótti framsetning þess óþarflega flókin, og hefir því lagt til, að breytt yrði niðurröðun efnisins, eftir því sem breytingartillögurnar á þgskj. 284 fara fram á.