19.08.1915
Neðri deild: 37. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 743 í B-deild Alþingistíðinda. (1513)
72. mál, kirkjugarður í Reykjavík
Framsögum. (Guðm. Hannesson):
Jeg held að það geti tæplega misskilningi valdið, að í 3. gr. frumv. stendur »í kirkjugarði« í stað í kirkjugörðum, þegar það er að öllu leyti bersýnilegt, að frumv. gjörir ráð fyrir tveimur kirkjugörðum.
Að upphæðin til landkaupanna er bundin við 10. þús. kr., kom af því, að nefndin þóttist viss um, að hægt væri að fá nægilega stórt land undir kirkjugarðinn, án þess að farið væri fram úr þeirri upphæð.