06.08.1915
Neðri deild: 26. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (1565)

45. mál, ráðstafanir út af Norðurálfu-ófriðnum

Sigurður Eggerz :

Í samræmi við það, er jeg sagði, þá er þetta frv. var til 2. umr., þá vil jeg leyfa mjer að gjðra fyrirspurn til hæstv. ráðherra um það, hvort stjórnin gjöri ekki neinar ráðatafanir til þess, að kaupa kornbirgðir handa landinu. Svart hæstv. ráðherra þessu játandi, þá mun jeg láta mjer það nægja, en fái jeg ekki fullnægjandi svar, þá mun jeg sennilega bera fram þingsál.till. um þetta mál síðar á þinginu.