02.08.1915
Neðri deild: 22. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 861 í B-deild Alþingistíðinda. (1606)

63. mál, Dalavegur

Sveinn Björnsson :

Þar sem fleiri frumvörp um breytingar á vegalögunum liggja fyrir deildinni, verð jeg að telja heppilegt, að sama nefndin fái öll þau mál til meðferðar. Ef þetta mál er svo einfalt, sem háttv. þm. Dal. (B. J.) segir, þá þarf nefndin ekki að hafa það lengi til yfirvegunar, og getur afgreitt það fyrst allra mála.