02.08.1915
Neðri deild: 22. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 878 í B-deild Alþingistíðinda. (1653)

67. mál, dýraverndun

Flutnm. (Sveinn Björnsson):

Úr því að þessi uppástunga hefir komið fram, þá gjöri jeg það að tillögu minni, að sjerstök nefnd sje kosin til að fjalla um þetta mál. Mjer finst fjarri sanni að vísa málinu til landbúnaðarnefndar, bæði af því, að hún hefir þegar mjög mörg mál til meðferðar og því ærið að starfa, og af hinu, að þetta mál er meira almenna eðlis en þau mál, sem til þeirrar nefndar er vísað.